halló..
hef því miður ekki komist í vigtun síðustu tvo þriðjudaga þar sem ég er byrjuð að vinna á kvöldin aftur. En ég ætla að reyna að fara á mánudagsmorguninn í staðinn! Þetta hefur þó gengið alveg ágætlega svona ein, og ég er reyndar viss um að ég hef lagt af, en það er líka að þakka endajaxla töku sem ég var í á fimmtudaginn, svo núna hríðhorast ég : ) ég passa mig samt að reyna að borða nóg, því annars kemur þetta allt saman til baka á einum degi. Er að reyna í dag, þar sem það er betra að borða núna að borða alla mína punta.
Heilsufrík!! Þú varst að spyrja mig hvar ég færi á fundi hjá weight watchers. Ég á heima í Evrópu, n.t.t í Belgíu. Mér finnst þetta alveg frábært kerfi sem þeir eru með, og undirstaðan er að þú mátt borða allt. Það er ekki svona mikil boð og bönn, þetta er meira verið að kenna fólki að geta borðað allt í hófi… og það fíla ég!! Ég veit ekki hvar þú ert í heiminum, en yfirleitt geturðu fundið þetta auðveldlega á netinu..
Ef maður er mjög samviskusamur þá getur maður náð stórkostlegum árangri! Þetta hentar mér miklu betur en danska kerfið, með fullri virðingu fyrir dönunum : ) bara sitt hentar hverjum. Svo lengi sem við náum takmörkum okkar!!!
Núna er ég komin á fullt í próflestri, loksins ég byrjaði núna á fimmtudaginn, æðislegt að vera byrjuð. ég er búin að trassa þetta svo lengi. Núna er ég komin í gírinn og þá stoppar mig ekkert. Fyrsta próf er ekki fyrr en 29. mai, en þetta er svo mikið námsefni sem ég á eftir að fara yfir svo það borgar sig að byrja núna.
Vonandi gengur ykkur öllum vel og best að skella sér einn blogg hring núna,
knús á línuna,
limoentje**