Árinu eldri…. : )

jæja…loksins skrifa ég!!

Síðasta vika var nú heldur betur frábær. Ég varð 30 ára síðasta fimmtudag, og á þriðjudeginum var bankað upp á hjá mér, það var barasta familían komin alla leið frá Íslandi í óvænta heimsókn til mín. Þetta höfðu þau planað síðan um jól með kærastanum mínum og ég alveg grunlaus!!! Þetta var alveg frábært og yndislegir dagar sem við áttum hér saman. Það er ekkert eins gott og að vera með fjölskyldunni, og þegar maður býr svona langt í burtu er hver mínúta svo mikilvæg. Það var sem sagt ekki mikið af dönsku mataræði í gangi, en ég er öll að braggast og tók upp minn fyrri lífstíl í dag með bros á vör  : )

Mamma kom líka með fullt af uppskriftum úr vikunni, því þetta er eins og ég segi pínu erfitt þegar maður er ekki með DDV hér á svæðinu og maður þarf að impróvisera þetta allt saman, en það hjálpaði mér alveg heilmikið að lesa hvað stóð í öllum þessum greinum, og ég smám saman byrja að læra inn á þetta kerfi.  Ég hef samt enn enga hugmynd um krossana 1 og 2 svo ef einhver hefur mínútu aflögu til að útskýra það pínu fyrir mér…þá væri ég mjög þakklát…

Þarf að fara að vinna núna, og ég læt alveg örugglega heyra frá mér mjög fljótlega!!

gangi ykkur vel!!

p.s ef ykkur vantar smá pepp, kíkið þá á síðuna hennar Össu —-> Assa hér til hliðar, hún er sko búin að missa 7,4 kíló á einum mánuði!!!  ekkert smá flott hjá henni!!!

Advertisement

7 Responses to “Árinu eldri…. : )”

  1. Fröken UB Says:

    Fann þetta e-s staðar á netinu:

    Extra 1, það inniheldur að maður má borða 15 gr af sykurlausri sultu (t.d. st.dalfour) og nota 5 grömm af fitu til steikingar og drekka 2 og hálfan desilíter af grænmetisdjús og tómatdjús.

    Extra 2: Við hvern dag eru 3 krossar af extra 2 til að nota. Maður ræður alveg í rauninni hvernig maður notar þá, því krossarnir eru ekki bundnir endilega við það að vera 3 hvern dag. Maður má nota engan eða alla 21 krossana á einum degi og allt þess á milli. Bara að maður noti ekki fleiri en 21 kross á einni viku og flytji ekki ónotaða extra 2 krossa yfir í næstu viku. Þess vegna er það sniðugt að safna ónotuðu krossunum í enda vikunnar og nota hann til að búa til eitthvað gúmmilaði. 3 krossar af extra 2 geta verið t.d. 3 tsk hveiti, 3 tsk tómatsósa, 3 tsk kjötkraftur, 3 tsk kakó, 3 tsk ostrusósa eða 150 grömm tómatpúrra

  2. Assa (Auður) Says:

    Ynnilegar hamingju óskir með 30 afmælið þitt :)
    Ég þakka hólið og vona að ég geti gefið öðrum von og styrk :)
    Þetta er hægt.

    Hugsaðu þetta í kössum… þú hefur 4 kassa og einn kassi er þá:

    250 ml fjörmjólk
    125 g sýrður rjómi
    200 ml Ab-Mjólk eða létt súrmjólk

    Extra2: td.
    DDV kakó
    Matarlím
    DDV Lakkrísduft
    Sætt sinnep
    Dijon sinnep
    Tómatsósa
    Remolaði

  3. Unna Says:

    Til hamingju með afmælið skvís ;)

  4. bubble Says:

    til hamigju með afmælið gangi þér vel
    kv bubble

  5. isobel Says:

    Til hamingju með afmælið!! Frábært hjá fjölskyldunni að koma að heimsækja þig, þú ert örugglega endurnærð :o )
    Hvernig er svo að vera þrítug? er mikið búin að vera að spá í það síðustu daga þar sem það styttist og styttist í mitt þrítugsafmæli..
    hafðu það gott um helgina og gangi þér vel!

  6. gorkúlan Says:

    til hamingju með afmælið:) æði að fá familiuna í heimsókn:)…..gangi þér vel:)

  7. Assa (Auður) Says:

    Líst þræl vel á þetta og hlakka til að heyra meira frá þér :) Seigi bara áfram stelpa. Og til hamingju með afmælið sem var í byrjun mánaðarins hehe aldrei of seint að óska þér til hamingju með daginn.

Leave a Reply

Fill in your details below or click an icon to log in:

WordPress.com Logo

You are commenting using your WordPress.com account. Log Out / Change )

Twitter picture

You are commenting using your Twitter account. Log Out / Change )

Facebook photo

You are commenting using your Facebook account. Log Out / Change )

Connecting to %s


Follow

Get every new post delivered to your Inbox.