þrátt fyrir páskahelgina losaði ég mig við 700 grömm þessa vikuna. Ég er alsæl með þetta, búin að fara í 3 matarboð og fara út að borða líka og ansi mikið rauðvín runnið inn fyrir mínar varir, það virðist ekki hafa nein áhrif á mig : ) Núna er ég búin að missa 2,8 kíló á þremur vikum. Góður árangur finnst mér. Ég er komin á gott skrið í ræktinni og er komin upp í 57 mín. í brennslu og byrjaði að lyfta pínu í dag, bara 2 tæki til að byrja með og bæti svo smám saman við þetta. Labba líka út um allt og fer léttilega með klukkutíma eða meira labb á dag, samtals. Hjólinu mínu var stolið, svo gangan er tekin við!!!
klukkan er orðin svo margt, vorum að koma heim af jass tónleikum hér niðri í bæ, og núna er komin tími til að skríða upp í rúm…
hafið það gott*
limoentje**
April 11, 2007 at 2:53 pm
Til lukku með léttinginn, kalla það gott að léttast yfir páskana
April 11, 2007 at 4:20 pm
Glæsilegt hjá þér og til hamingju með árángurinn
April 13, 2007 at 12:14 pm
vá flott hjá þér til hamingju. kv bubble
fæ að hafa þig á tenglalista hjá mér er það ekki í lagi !!
April 25, 2007 at 2:07 am
já gott hjá þér að léttast um páskana:) dugleg…. vonandi dettur sá á hausin sem stal hjólinu þínu:(…..gangi þér vel áfram…knús……
April 28, 2007 at 2:43 pm
Hæ hæ
Ég er líka að velta fyrir mér að fara á Weight Watchers. Hef kíkt á fund áður en var ekki tilbúin. Hvar ert þú að fara á fundi? Ertu í Evrópu eða Ameríku?
Heilsufrík