Jæja, skellti mér í vigtun í morgun, hef ekki komist í 2 síðustu skipti, og ég er nú bara þannig að ef það er ekki pressa á mér, þá leysist aginn minn auðveldlega upp. En, samt sem áður voru 500 grömm farin, sem er að sjálfsögðu betra en ekkert, en ekkert til að hrópa fyrir heldur. En þetta mjakast í rétta átt. Það er mikilvægast!!! Núna eru 3,3 kíló farin síðan ég byrjaði hjá weight watchers, og markmið mitt er 5 kíló í viðbót fyrir lok júní, það ætti að takast, á 2 mánuðum.
óska ykkur góðs gengis, knús á ykkur allar,
limoentje*
Advertisement
May 2, 2007 at 12:12 am
Glæsilegt hjá þér og til hamingju með 500 grömmin
Þetta telur allt og smáar tölur verða að stórri tölu þegar þær safnast saman.